Steinsa segir frá :)
Myndir
01.06.2008 13:19:54 / steinsa

Ömmusystir

Já þá er sá merki atburður orðinn, ég er orðin ÖMMUSYSTIR :haha: þegar systurdóttir mín hún Dagrún varð mamma í gær. Ég segi því aftur, innilega til hamingju með sætu prinsessuna þína Dagrún, hún er svo mikið dúlla :d Vonandi sé ég fleiri myndir fljótt að norðan
Lóa systir minntist á það á sínu bloggi að þegar Dagrún fæddist varð hún móðirsystir aðeins 17 ára gömul, sem þýðir að ég hef verið 8 ára og í dag eigum við fullt af systkinabörnum :haha: hjá Hrefnu systir og Þór bróðir. Eftir 14 ár verða því 3 börn í fjölskyldunni sem munu fermast það árið (það er að segja ef þau ætla sér öll að fermast), Thelma Lind, Emilíana Guðrún hennar Hönnu frænku og litla prinsessan hennar Dagrúnar. Nóg að gera hjá pabba, fermist bæði barnabarn og langafabarn :haha: já ég er farin að hugsa svo langt haha, því tíminn líður svo hratt að áður en við vitum af verða börnin komin í skóla og farin að fermast, taka bílpróf og svoleiðis og svoleiðis....


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 17:04:16 / steinsa

Brjóstaþoka

Brjóstaþoka er víst þekkt fyrirbæri hjá konum sem nýlega hafa eignast barn. Brjóstaþokan hefur hellst yfir íbúðina í Grafarvoginum en hún virðist samt bara svífa yfir mér. Ég er alveg einstaklega gleymin og utan við mig þessa dagana. Ok ég hef ekki verið þekkt fyrir gott minni en það hefur hríðversnað og ég er þekkt fyrir að tala oft vitlaust, jafnvel búa til ný orð og auðvitað hefur það líka versnað.

Ég fór í heimsókn til Auðar vinkonu um daginn að kíkja á litla snúllann hennar Bjart Einar. Ég legg bílnum fyrir utan og tek Thelmu Lind úr bílnum. Eftir heimsóknina hjá Auði rölti ég aftur út í bíl og þegar ég kem að bílnum sé ég auglýsingarmiða á bílnum eða ég hélt það væri það, nema hvað þegar ég kem nær sé ég að þetta er sko ekkert auglýsingamiði heldur STÖÐUMÆLASEKT!! ég sem er svo samviskusöm og borga alltaf í stöðumæla, furða mig á því að það séu stöðumælagjald þarna, ég er varla búin að sleppa hugsuninni þegar ég rek augun í stórt skilti sem segir að það sé stöðumælagjaldskylda í þessari götu, já ég var ekki klárari en það, og það í miðbæ Reykjavíkur, er hægt að vera meira utan við sig??

Dæmi um gleymsku hjá mér þessa dagana er þegar Lóa bað mig um að gefa kisunum hennar meðan hún væri út í Berlín, jú ekkert mál, ég þorði ekki öðru en að setja það í reminder-inn í símanum svo ég myndi ekki gleyma þeim. Lóa bað mig um að skanna nokkrar ljósmyndir inn í tölvuna og sagði mér hvar hún myndi skilja þær eftir heima hjá sér svo ég gæti tekið þær þegar ég gæfi kisunum, já ekkert mál sagði ég. Þegar Lóa er komin heim frá Berlín og kíkir í heimsókn til okkar réttir hún mér myndirnar og segir, hérna eru myndirnar, ég horfi á hana eitt spurningarmerki og hún sagði, þessar sem þú áttir að taka heima. Svo ég spyr hana: baðstu mig um það??? Já ég virðist ekkert muna þessa dagana.

Í gær átti Ásgeir minn afmæli, ég sagðist hafa sagt einhverjum að það yrði "heitt á könnunni og kaffi", en meinti að sjálfsögðu, "heitt á könnunni og kökur" ;) Við tókum svo spil í gærkvöldi nokkur saman og ég held ég hafi aldrei verið jafn utanvið mig og þá, ég beið oft og beið þegar ég átti að gera, var engan vegin að fatta að nú átti ég að gera, sagði vitlaus orð og var bara engan vegin á staðnum virtist vera hehe.


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 01:46:00 / steinsa

Skírn í dag (eða í gær, það er víst komið fram yfir miðnætti)

Prinsessan okkar var skírð í dag og fékk nafnið Thelma Lind. Dagurinn heppnaðist mjög vel og þökkum við öllum sem komu kærlega fyrir. Þið getið svo séð myndir inn á síðunni hjá Thelmu Lind, ekki hika við að biðja um lykilorðið ef þið hafið það ekki :d

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2008 22:54:15 / steinsa

Hvað á barnið að heita??

Já nafnið er löngu ákveðið, en áður en við gefum það upp, væri gaman að heyra hvað þið haldið að snúllan okkar heiti?? Endilega giskið í kommentin, og endilega giska nógu oft :) gaman að sjá hvað þið haldið að hún muni heita :d

» 6 hafa sagt sína skoðun

05.04.2008 01:36:29 / steinsa

Nútíma mamma án rafmagns

Það er alveg ótrúlegt hvað maður getur orðið háður nútímatækninni. Já ég tók eftir því um daginn hvað maður er háður rafmagninu. Ég hef verið að segja hvað maður hálf sakni þess að rafmagnið fari af þegar vond veður eru eins og gerðust í "gamla daga" þá var bara kveikt á kertum og svo sat maður voða kósý að lesa eða eitthvað. En viti menn um daginn fór rafmagnið af, nei húsið var ekki fyllt af kertum því það var dagur og því enginn myrkur, kveikti reyndar á einu kerti inn á baði þar sem enginn gluggi er þar og því ansi dimmt þegar maður lokaði þangað inn. Ég hef ekki lent í svona löngu rafmagnsleysi í mörg ár og þá segi ég mörg ár því þetta var alveg í nokkra klukkutíma, já svona er að búa upp í sveit, allt getur gerst 8|

Jæja ég var í tölvunni þegar allt í einu slokknaði á tölvunni, ég blótaði tölvunni fyrir að slökkva á sér og ætla að fara að kveikja á henni aftur, þá vaknar litla sæta prinsessan mín og ætla ég að kveikja ljós þar sem mér fannst aðeins vera farið að rökkva. Nóbb ekkert ljós kom, hmm ætli öryggið hafi farið, svo ég stekk fram á gang og tjékka á stöðunni, já allt í orden með það, svo ég fatta þá að líklega er rafmagnslaust. Hvað gerir nútímakonan? jú hún ætlaði að fara á netið til að ath hvort það stæði eitthvað um þetta þar..... NETIÐ!!!  hvernig ætlaði ég eiginlega að komast þangað þegar það er rafmagnslaust. Jæja ég er ekki sú gáfaðasta þessa dagana. Í rafmagnsleysinu datt mér hins vegar ýmislegt í hug hvað ég gæti gert, já sett í þvottavél, kíkt á dvd og ýmislegt þess háttar, já gáfurnar voru ekki að hjálpa mér þann daginn. Ég fattaði þó áður en ég framkvæmdi þessa hluti að það var að sjálfsögðu ekki hægt án rafmagns. Svo ég fór að þakka fyrir það að barnið mitt er á brjósti en þyrfti ekki að hita pela í örbylgjuofninum, en fattaði svo að ég gæti nú hitað pelann í potti ef ég væri með pelabarn..... já nei ekki eru gáfurnar ennþá komnar, að sjálfsögðu gæti ég ekki notað eldavélina heldur. Jiminn fóru gáfurnar úr mér í fæðingunni?? Ásgeir kallaði svo úr stofunni á mig og bað mig að kveikja á sjónvarpinu þar sem hann sat með prinsessuna sofandi í fanginu, ég rauk að sjálfsögðu til og ætlaði að fara að kveikja á sjónvarpinu þegar ég fattaði að hann var að stríða mér, jamm ekki hægt að kveikja á sjónvarpinu. Svo ætla ég að skreppa aðeins út og fer fram á gang og ætla að ýta á takkann fyrir lyftuna en ekkert gerist, nei að sjálfsögðu ekki, lyftan gengur fyrir rafmagni!!!

Já það virtist vera að það eina sem mér datt í hug að gera í rafmagnsleysinu var að gera hluti sem maður þarf rafmagn í.....


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 11:39:11 / steinsa

Orðin mamma :)

Jæja biðin varð nú ekki eins löng og ég hélt, nei því þegar ég vaknaði undir morgunn 4.mars fattaði ég að nú væri að koma að þessu og um sólarhring síðar var ég komin með fallegustu prinsessuna í fangið. Jiii hvað ég varð stolt :haha: Hún er að sjálfsögðu fallegasta barn sem hefur fæðst :d og vorum við foreldrarnir að springa úr stolti uppá spítala. Prinsessan fékk svo mikla athygli uppá spítala og ekki minnkaði stoltið þá haha. Hún er með svo mikið dökkt hár, algjöran lubba og eina ljósa "strípu" sem er bara krúttlegast :d Við komum svo loksins heim í gær og nú tekur við alvara lífsins sem foreldrar :d og hlökkum við mikið til næstu daga, vikur, mánuði og ára með prinsessunni okkar.




» 2 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 14:27:22 / steinsa

Formleg bið er hafin...

Jæja þar sem ég er komin 40 vikur og degi betur er hin formlega bið hafin, þó ég hafi nú verið farin að bíða áður hehe. Held að krílið ætli ekkert að flýta sér í heiminn og ljósmóðirin var heldur ekkert á því, sagði í dag að það kæmi örugglega bara eftir viku (já TAKK fyrir það :s ) og fór að ræða um hugsanlega gangsetningu sem yrði gerð við 42 vikurnar.
En þar sem við foreldrarnir erum svo róleg þá kemur mér það svo sem ekkert á óvart hversu rólegt krílið er, auðvitað nennir það ekkert að koma í þennan kulda og snjó, það er bara að bíða eftir vorinu og hlýjunni og kúrir sér bara í mallanum og hefur það gott. Ætli það sé ekki bara ávísun á þolinmótt barn?? ;) Mamman hamast þessa dagana við að reyna að klára prjónaskapinn fyrir krílið en það gerir ekkert til þó krílið komi áður en ég verð búin með þetta.

En þar sem það styttist óðum í krílið þá erum við búin að opna síðu fyrir það:  http://www.barnaland.is/barn/71114 og þið getið farið inn á síðuna og óskað eftir lykilorðinu þar eða haft samband við okkur og beðið um lykilorðið.


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 22:15:06 / steinsa

Styttist í krílið...

Já ég er víst komin rúmar 37 vikur á leið. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt :lol: áður en ég veit af verð ég komin með litla krílið okkar í hendurnar. Fyrir utan slæmt ógleðistímabil í byrjun hef ég átt mjög góða meðgöngu og ef ég fyndi ekki hreyfingar hjá litla krílinu hefði ég haldið að ég væri bara ekki ólétt. En nú er óléttan farin að segja til sín, enda ekki skrýtið þegar það eru bara rúmar tvær vikur í settan dag :haha: Bumban er orðin þyngri og farin að síga í og og barnið farið að þrýsta í grindina svo ég er komin með mörgæsagang. Þið hafið eflaust séð mig kannski bregða fyrir í bænum vaggandi eins og mörgæs hehe. Ég hitti einmitt lækninn um daginn og nefndi það við hann að ég væri orðin mjög þreytt og úthaldslítil og farin að fá í grindina. Læknirinn var fljót að svara að hún sæi það hvernig ég gengi að ég væri komin með í grindina. Ég fékk því vottorð um að minnka við mig vinnuna og er nú komin í 50%, sem er mjög gott því úthaldið er svo lítið að ég er bara alveg búin á því á hádegi. Ég vinn því bara til hádegis núna og legg mig svo í 2-3 tíma. Það er kannski ekki skrýtið að vera þreyttur þegar maður er með nánast fullburða kríli inn í sér og að vakna nokkrum sinnum á nóttunni til þess að pissa hehe og ég næ því aldrei alveg heilum nætursvefni. Sef yfirleitt bara í 2-3 tíma í einu og þarf þá að pissa, leggst svo aftur upp í rúm og sef í 2-3 tíma og þarf þá að pissa, þannig gengur nóttin fyrir sig;). En hvað gerir maður ekki fyrir svona lítil og sæt kríli :haha: Hlakka svo til að hitta krílið :haha:
Annars er allt að verða tilbúið fyrir krílið hérna heima, fullt af fötum búið að þvo og fullt af barnadóti byrjað að streyma heim.


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 11:26:26 / steinsa

Sveitin Grafarvogur

Já ég vissi það nú þegar ég flutti upp í Grafarvog að ég væri að flytja upp í sveit. En það hefur komið æ meira í ljós í vetur. Já þið vitið að veðrið er yfirleitt verra upp í sveit!! Þó ég tilheyri Reykjavík þá virðist oft vera mun verra veður hjá mér heldur en öðrum Reykvíkingum. Það er ósjaldan sem ég hef verið heima og alveg bandbrjálað rok og svo þegar ég kem niðrí vinnu eða annars staðar í Reykjavík þá er nánast bara logn takk fyrir 8| Það þarf ekki nema svona 2 kílómetra og það er bara komið allt annað veður, eins og maður sé komin í annað land.

Eitt dæmi um mikið rok í Grafarvoginum var um daginn. Ég ætla að stökkva út í bíl á undan Ásgeiri en þegar ég kem að bílaplaninu, sé ég að til þess að komast að bílnum þarf ég að fara yfir svell, og þá erum við að tala um alveg GLER svell og þvílíkt rok að ég stóð varla í lappirnar. Ég stóð þarna og horfði á bílinn og spáði í því hvernig ég ætti að komast yfir svellið, eins og það væri straumhörð á milli mín og bílsins (sjáiði þetta ekki fyrir ykkur?). Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég sennilega labbað hægt yfir og jafnvel dottið svona 2-3 sinnum á leiðinni en þar sem maður er nú með lítið varnarlaust kríli í maganum þorði ég bara engan veginn yfir og ákvað því að koma mér aftur að húsinu og bíða eftir Ásgeiri. Ásgeir mætir út og sér enga Steinunni í bílnum híhí, hann var fljótur að fatta og sá mig standa þarna með hvolpaaugu að biðja um hjálp hehe. Við leiddumst því í átt að bílnum og vá þvílíkt og annað eins rok, við stóðum nánast bara á svellinu og rokið ýtti okkur að bílnum, vorum næstum dottin oft en náðum að halda okkur og einhvern veginn náði ég að grípa hárbandið líka því það var að fjúka af!! Hvernig það fór að því, skil ég ekki ennþá. Ég verð nú að segja það að þetta er eins og í grínmynd hvernig við runnum bara áfram að bílnum með hendur og fætur í allar áttir. En inn í bílinn komumst við og út úr sveitinni. Hvað tók svo við niðrí vinnu? jújú smá vindur, ekki meira en það. Nánast bara gola!! :S


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 14:14:34 / steinsa

Undirbúningur

Jæja það er alltaf sama sagan hérna hehe, ég er svo löt við að blogga.

Ég ætla byrja á því að óska Önnu og Svavari innilega til hamingju með prinsinn, þau eignuðust lítinn prins á fimmtudaginn :D 

Héðan er allt gott að frétta, erum þessa dagana bara í undirbúningi fyrir barnið. Erum að fá smátt og smátt barnadótið inná heimilið, það er bara gaman :D Það var ekkert smá skrýtið að koma heim með barnabílstól um daginn hehe svo kemur svona einn og einn hlutur í einu. já það styttist alveg ótrúlega hratt í að krílið komi í heiminn. Vorum í síðustu viku á foreldrafræðslunámskeiði hjá heilsugæslunni, þar sem var farið í fæðinguna og deyfingar. Svo förum við á morgun að skoða fæðingardeildina. Já ég verð að segja að þetta varð einhvern veginn raunverulegra við að fara á þetta námskeið og líka þegar barnadótið kemur heim.

Eitthvað hefur þessi ólétta breytt mér hehe jú ég er farin að prjóna (hef sko ekki prjónað í mörg ár). Fór í heimsókn til hennar Auðar og fékk smá kennslu og upprifjun ;) en svo verður bara að koma í ljós hvort að bjartsýnin hafi farið með mig eða hvort mér tekst að klára þetta áður en krílið fæðist. Ég lofa sko engu!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 18:14:02 / steinsa

Gleðilegt ár

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 13:00:58 / steinsa

Þorláksmessa

Jæja þá eru jólin bara nánast komin. Mér finnst jólin vera komin á þorláksmessukvöld. Förum í skötu til tengdó og svo er alltaf farið að labba Laugaveginn seinna um kvöldið. Já það er eitthvað jólalegt við það :lol:

Þessi mánuður hefur heldur betur liðið hratt, ég tók varla eftir því að hann leið hjá. Það er búið að vera svo mikið að gera. Rétt fyrir klukkan þrjú á föstudaginn hætti ég í vinnunni og er komin í jólafrí og mæti ekki aftur fyrren 2. janúar :haha:  Já mín ætlar sko að slappa af og hvíla sig, held að veiti ekki af hehe. Er búin að keyra mig svolítið út þessa vikuna og ákvað að sofa út í gær, mín svaf til hálf tvö takk fyrir og það var eiginlega engin leið fyrir Ásgeir að vekja mig, ég var svo rotuð og hálf meðvitundarlaus :$ Annars er allt að verða klárt fyrir jólin hjá okkur, búin að pakka inn öllum gjöfum, skreyta jólatréð, kaupa inn matinn, senda jólakortin (já sorry þau fóru svolítið seint af stað í ár, vona að þau nái). Held að allt annað sé líka búið, það er ekkert eftir að gera fyrir jólin held ég :haha: Ekkert smá ánægð, fórum meira að segja í bæinn í gærdag og Smáralindina í gærkvöldi (já við erum dálítið klikkuð hehe) bara að skoða og kíkja, okkur vantaði ekkert fleiri jólagjafir. Okkur langaði líka að kíkja aðeins út, nenntum ekki að hanga inni lengur hehe.

Annað af okkur er það að frétta að við fórum í mæðraskoðun á fimmtudaginn og leit allt vel út, krílið vex og dafnar vel og mamman kemur sjálfri sér á óvart hvað hún er hress. Þegar ég sá fyrir mér að ég yrði komin 30 vikur um jólin, hugsaði ég með mér að ég væri alveg kasólétt og engan veginn að geta staðið í neinu nema hafa fætur upp í loft. Nei annað kom í ljós, mamman er alveg ótrúlega hress og finnur varla fyrir þessari meðgöngu (ef við gleymum ógleðistímabilinu fyrstu vikurnar). Svo lítið finnur hún fyrir meðgöngunni að hún gleymir sér stundum og fær hún yfirleitt að heyra það frá öðrum, að nú ætti hún að slaka á og fara vel með sig hehe ;) því ef hún er ekki minnt á það, fær hún að kenna á því eftirá, já þá hafa komið bakverkir, þvílík þreyta, sinadrættir og fleira í þeim dúr. Já það er betra að fara vel með sig svo maður endi ekki rúmliggjandi og vona að ég fái ekki grindargliðnun og þannig. Bumban gleymist líka stundum og fattar hún ekki að það er ekki lengur hægt að troða sér alls staðar á milli eða draga magann inn, NEI það gengur víst ekki hehe  :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 10:17:58 / steinsa

jólin nálgast

Jæja þá styttist í jólin, tíminn líður alveg ótrúlega hratt :) enda aðventan skemmtilegur tími. Við Ásgeir fórum um daginn í bæinn og gekk alveg hreint ótrúlega vel að finna jólagjafir, við erum bara nánast að verða búin, bara örfáar gjafir eftir, erum meira að segja búin að pakka nokkrum inn :D. Ég og Rúna bjuggum til konfekt um daginn og gekk það bara alveg ágætlega hjá okkur :haha: bragðið var gott og er það ekki fyrir öllu ;)

Á næstunni er svo að fara að baka smákökur, skera og steikja laufabrauð, fara í útskriftarveislu og skrifa jólakort. já það er nóg að gera hjá mér þessa dagana, svo er ég í meðgöngusundi tvisvar í viku og meðgöngujóga tvisvar í viku. Reyndar ákvað ég að vera bara í jóganu í einn mánuð og það endar núna fyrir jól svo það fer að hægjast um hjá mér. Það er alltaf verið að benda mér á að ég þurfi nú að passa mig og hvíla mig, en það er svolítið erfitt þegar maður er svona mikið jólabarn eins og ég og það er svo mikið um að vera eitthvað :D Ég reyndar finn alveg að orkan er minni og ég þarf að passa mig meira en áður. Sundið gerir mér alveg ótrúlega gott og ætla ég að vera í því eins lengi og ég get, helst fram að fæðingu. Það er bara ótrúlegt að ég sé komin 6 mánuði, vá þetta styttist alveg ótrúlega, eins og það var langt að bíða fram að því að vera komin 12 vikur þá hefur tíminn síðan liðið alveg ótrúlega hratt. já það er ótrúlegt að eftir 3 mánuði verðum við komin með lítið kríli :haha:

Krílið hefur það fínt eins og ég best veit, mæðraskoðanir hafa komið vel út, krílið hreyfir sig og sparkar, og er meira segja farið að sparka upp að rifbeinum takk fyrir!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 20:27:28 / steinsa

Nokkrar vikur í jólin...

Já nú er aðventan að byrja þar næstu helgi. Tíminn líður svo hratt, en það er skemmtilegur tími framundan; konfektgerð, kransagerð, laufabrauðsgerð, smáköku bakstur, og annar jólaundirbúningur. Ég er nánast búin að gera jólakortin en svo skrifa ég bara á þau í desember. Ég er rétt byrjuð að kaupa jólagjafir en komin með hugmyndir að fleirum svo ég get haldið áfram að versla :haha:

Annars er það að frétta að ég hef haft það mjög gott á meðgöngunni síðustu vikurnar. Þreyta var farin að stríða mér aðeins en ég er skárri af henni, annars kvarta ég ekki yfir þreytunni, finnst hún sko miklu skárri en þessi ógleði sem ég fékk stóran skammt af í byrjun meðgöngu. Krílið er farið að sparka og hreyfa sig mun meira og hefur Ásgeir fengið að finna nokkur spörk, en annars er krílið svo mikill prakkari að það hættir oft að sparka þegar Ásgeir leggur hendina ofan á magann hehe. Svo finnst krílinu líka voða gaman að sparka í þvagblöðruna mína, sérstaklega þegar ég er á fundum í vinnunni 8| svo ég er komin alveg í keng í sætinu. Já veit ekki hvort þetta séu mótmæli eða hvort krílinu finnst svona gaman að vera í vinnunni með mömmu sinni hehe


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 20:17:30 / steinsa

Meðgöngukvillar??

Sorry ef þið eruð orðin leið á óléttubloggum frá mér, en þetta tekur enda, ég er nú meira en hálfnuð ;)

Allavega....

Maður hefur lesið um og heyrt margar sögur þar sem konur fá hin ýmsu "æði" á meðgöngunni og hefur maður hlegið yfir þeim sögum. Ég var nokkuð viss um að ég fengi engin "æði" á meðgöngunni því jú ég taldi mig vera svo meðvitaða um þetta að ég gæti stoppað þetta æði strax ef ég fengi "æði" fyrir einhverju en svo er víst ekki.... Já það var ekki fyrren löngu seinna þegar ég heyri aðrar óléttar konur vera að tala um "æðin" sín sem allt í einu kviknar á perunni hjá mér 8| ó my óléttan hafði sigrað mig og það án þess að ég hafi tekið eftir því. Já gott fólk, Steinunn var komin með "æði" fyrir APPELSÍNUM 8| Hvernig í ósköpunum fór ég að því??? jú appelsínur eru góðar en ég, nammigrísinn sjálfur, hef aldrei verið dugleg að borða ávexti, hvernig gat þetta þá farið framhjá mér? Jámm ég borðaði sem sagt 2-3 appelsínur á hverju kvöldi og þegar ég var á leiðinni heim úr vinnunni og vissi að það væri ekki til appelsínur þá kom ég við í búð til að tryggja mér það að til væru appelsínur um kvöldið, svo þegar fór að líða að kvöldi hlakkaði ég til að fara að gæða mér á safaríku appelsínunum sem biðu mín í ávaxtaskálinni.....rugluð?? haha Allavega þá hefur nú þetta æði minnkað að undanförnu og hver veit nema eitthvað nýtt æði dúkki upp :$

Annað meðgöngumál er að ég hef nú aldrei verið þekkt fyrir gott minni en úff eftir að ég varð ólétt hefur það versnað snarlega, það er víst þekkt að minnið hverfi aðeins á meðan konur eru óléttar. Fyrr í haust eða sumar var ég að baka og bara snarsnérist í eldhúsinu því ég mundi ekkert hvað ég ætlaði að ná í eða setja út í skálina, en að lokum tókst þetta og tókst að klára að baka. Lóa systir hefur líka verið að spyrja mig að hinu og þessu en ég bara man ekki svörin 8|  Hún sagðist líka ætla að hætta að spyrja mig að einhverju þangað til ég er búin að eiga... 

En það góða við þetta allt saman er að það er nú hægt að hlæja að þessu eftirá ;) 


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  28  Alls: 60430
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.